KLING & BANG
Kling & Bang gallerí var stofnað af tíu myndlistarmönnum í byrjun árs 2003. Stefna Kling & Bang er að kynna myndlist sem ögrar samhengi og innihaldi skapandi hugsunar, bæði eftir unga og eldri listamenn, íslenska sem erlenda. Sum verkefni og sýningar eru unnin í samstarfi við utanaðkomandi gallerí eða sýningarstjóra.
Kling & Bang leitast einnig við að taka beinan þátt í sköpunarferli sýninga og verka, þ.e. með því að framleiða verkin í samstarfi við sýnendur.
Kling & Bang rak einnig 5000 fermetra listamiðstöðina KlinK og BanK í tvö ár, árin 2004 og 2005. Rúmlega 137 myndlistarmenn, hönnuðir, kvikmyndagerðarmenn og tónlistarmenn störfuðu í byggingunni daglega og fóru þar einnig fram sýningar, fyrirlestrar, leikhús og hin ýmsu verkefni, eða í það heila 3 viðburðir á viku þessi tvö ár.
Kling & Bang er í samstarfi við Thyssen-Bornemisza Art Contemporary, Vienna og Reykjavíkurborg.
Kling & Bang
Marshallhúsið — Grandagarður 20, 101 Reykjavík
www.this.is/klingogbang